Yfirlit yfir umsagnir Sjávarútvegsþjónustunnar við frumvarp um lagareldi 2026

Yfirlit yfir umsagnir er að finna hér í PDF skjali

Þess ber að geta að margt er vel gert í frumvarpi til laga um lagareldi. Þrátt fyrir jákvæðar breytingar frá frumvarpinu frá 2024 eru þó enn verulegir annmarkar á efni þess og útfærslu. Athygli vekur að ekki hefur verið tekið nægjanlegt tillit til fjölmargra réttmætra athugasemda og ábendinga, bæði frá aðilum sem eru jákvæðir og þeim sem eru gagnrýnir á sjókvíaeldi á laxi.

Ekki tækt til samþykktar

Í núverandi mynd er frumvarpið ekki tækt til samþykktar.

Því er lagt til að atvinnuveganefnd, líkt og í tilfellum sumra annarra umsagnaraðila, sendi frumvarpið aftur til atvinnuvegaráðuneytisins. Þar verði unnið markvisst úr þeim athugasemdum sem borist hafa frá fjölmörgum hagsmunaaðilum.

 Vinna þarf að almannahagsmunum

Frá árinu 2017, þegar skýrsla sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um stefnumótun í fiskeldi var lögð fram, hefur of mikil áhersla verið lögð á að tryggja og verja hagsmuni erlendra fjárfesta. Brýnt er að í áframhaldandi vinnu verði aukin áhersla lögð á vernd almannahagsmuna og sjálfbæra nýtingu auðlindarinnar.

Sex kaflar teknir fyrir

Í meðfylgjandi fylgiskjali er að finna samantekt umsagna um eftirfarandi kafla frumvarpsins:

Í hverjum kafla er fyrst yfirlit yfir stöðu og þróun viðkomandi málaflokks til að auka skilning lesanda. Að því loknu er fjallað um einstakar greinar og lagðar fram tillögur. Í lokin eru dregnar upp mögulegar sviðsmyndir um þróun mála verði frumvarpið samþykkt óbreytt.